Wikiheimild iswikisource https://is.wikisource.org/wiki/Wikiheimild:Fors%C3%AD%C3%B0a MediaWiki 1.47.0-wmf.1 first-letter Miðill Kerfissíða Spjall Notandi Notandaspjall Wikiheimild Wikiheimildspjall Mynd Myndaspjall Melding Meldingarspjall Snið Sniðaspjall Hjálp Hjálparspjall Flokkur Flokkaspjall Gátt Gáttarspjall Höfundur Höfundarspjall Blaðsíða Blaðsíðuspjall Frumrit Frumritsspjall TimedText TimedText talk Module Module talk Event Event talk Blaðsíða:Dægradvöl (1923).pdf/32 250 10449 29798 2026-05-06T21:38:08Z Skroggur 2928 /* Prófarkalesin */ 29798 proofread-page text/x-wiki <noinclude><pagequality level="3" user="Skroggur" />{{center|28}}</noinclude>var faðir minn ekkert lakari búmaður en aðrir; en hjer á Íslandi er það alvenja, að frádæma mönnum búskaparvit, ef þeir fást við bækur; fólk hjer er svo miklir skrælingjar, að það hefur ekki vit á neinu, nema búverkunum einum, eins og nú þetta vit er, því í raun og veru er það harla lítið, en sjálfbyrgingsskapinn vantar ekki. En eins og enginn kann tveimur herrum að þjóna, eins hafði faðir minn ekki tækifæri til að sjá jafnt um búskapinn sem um bókmenntirnar, og varð hann því að trúa öðrum fyrir búinu að miklu leyti. Voru þeir helzt eins og ráðsmenn, Þorsteinn Jónsson og Guðmundur Jónsson, sem var í Grímsey og síðar prestur á Stóruvöllum. Þeir voru báðir dugandi menn og engan veginn ótrúir, en þeir þurftu einnig að skipta sjer, með því að þeir voru látnir kenna okkur börnunum og ýmsum piltum undir skóla. Ekkert man jeg hvernig gekk til með bygginguna á Eyvindarstöðum, nema að veggirnir voru hlaðnir af Kristjáni í Hrafnhólum, sem kallaður var kjaptur; hann var hraðmæltur og orti vísur, faðir Kristjáns krumma. [Hann kvað þetta um móður mína: {{Center block|{{Smaller|<poem> „Verði þjer til yndis allt, eldur, sjór og vindur, á himni og jörðu heitt og kalt hjá þjer blessist þúsundfalt“. </poem>}}}} Kristján komst seinna í klandur (líklega af ógætni) og var haldinn í »svartholinu« eða fangaklefanum í Reykjavík, og þoldi hungur og kulda og illan aðbúnað, svo ábyrgð sætti; um það kvað Kristján: {{Center block|{{Smaller|<poem> „Jeg var talinn kraptaknár, kendi þrek í beinum, nú er jeg orðinn nístur nár af níðinganna fleinum“. </poem>}}}} {{nop}}<noinclude></noinclude> 0k426q3wmef6yi2ljrto5ymumjwajxc Blaðsíða:Dægradvöl (1923).pdf/33 250 10450 29799 2026-05-06T21:46:57Z Skroggur 2928 /* Prófarkalesin */ 29799 proofread-page text/x-wiki <noinclude><pagequality level="3" user="Skroggur" />{{center|29}}</noinclude>Þetta hefur verið gert um annanhvorn þeirra feðganna, jeg man ekki hvorn: {{Center block|{{Smaller|<poem> „Kristján Hólum krumma frá á kjaptastóli hraður, er að róla ýtum hjá illa póleraður“]. </poem>}}}} En trjeverkið framdi Bjarni snikkari úr Reykjavík, kallaður Bligh, af því að hann hafði lesið ferðasögu Blighs í Suðurhöfum, og vissi líklega ekkert annað. Jóhannes Zoëga var og fenginn úr Reykjavík til að setja rúður í gluggana, og var kunningsskapur milli þess fólks og foreldra minna meðan þau lifðu. Allir þessir menn voru hafðir í hávegum og vel metnir hjá okkur, og var allt öðruvísi viðmót en nú tíðkast. Eins og jeg hef lýst Bessastöðum, þar sem jeg ólst fyrst upp, eins skal jeg nú lýsa Eyvindarstöðum eftir því sem þeir voru frá því við fluttum þangað. Eyvindarstaðir liggja á miðju Álptanesi, á alla vegu umkringdir af mýrum, nema að norðanverðu, þar gengur harðvelli út frá túninu og var þar kallað »aurvöllur«. Útsýnið frá Eyvindarstöðum er þannig, að til vesturs og norðurs blasir sjórinn við og Snæfellsjökull í fjarska; til austurs sjest Seltjarnarnes, Valhúsið og ofan á Reykjavík, Fagraskógarfjall, Akrafjall, Skarðsheiði og Esja; í landsuður eru Bessastaðir og bera við hinar mógrænu hæðir, sem fela Digranes, Breiðholt og fleiri bæi þar; þar uppi yfir sjest Hengillinn, þannig heyrði jeg altaf í ungdæmi mínu, en síðan hef jeg heyrt þetta fjall nefnt »Lyklafell«; í suðri má sjá Lambhúsatjörn, melana, Garðaholt og Garðahraun, og þar uppi yfir Vífilfell og þaðan suður úr Lönguhlíðarfjöllin, Hádegishnúk og Keili; í útsuður og vestur er Brekka, Sviðholt og Bjarnastaðir;<noinclude></noinclude> gdlau7vq649f9xmxc9g5tmoy6209gx6