Wikibækur iswikibooks https://is.wikibooks.org/wiki/Fors%C3%AD%C3%B0a MediaWiki 1.47.0-wmf.16 first-letter Miðill Kerfissíða Spjall Notandi Notandaspjall Wikibækur Wikibækurspjall Mynd Myndaspjall Melding Meldingarspjall Snið Sniðaspjall Hjálp Hjálparspjall Flokkur Flokkaspjall Skjátexti Skjátextaspjall Module Module talk Event Event talk Vefleiðangrar/Svarthol 0 3666 35212 35055 2026-08-21T20:51:17Z CommonsDelinker 128 Skipti Black_Hole_in_the_universe.jpg út fyrir Black_Hole_in_a_Star_Cluster_(Artist's_Impression).jpg 35212 wikitext text/x-wiki [[Mynd:BlackHole Lensing.gif|600px|thumb|Þegar svarthol færist fram fyrir vetrarbraut sveigir það ljósið frá henni í kring um sig. Þá koma svokallaðir Einstein-hringir fram.]] Hvað eru svarthol? Vefleiðangur handa 12-14 ára krökkum í náttúrufræði. Vinnið þrjú eða fjögur saman í hóp. ==Kynnning== Flestir krakkar vita ekki mikið um hvað er í geimnum. En þegar þeir verða eldri læra þeir smám saman meira og meira um heiminn og þá finnst þeim hann verða skrítnari og skrítnari! Eitt af undarlegustu fyrirbærum alheimsins eru svokölluð svarthol. Í þessu verkefni lærið þið ýmislegt um svarthol sem flestir fullorðnir vita mjög lítið um ennþá því það er svo margt sem vísindamenn eru nýbúnir að uppgötva um þau. Það er ekki einu sinni komið í kennslubækurnar okkar! ==Verkefnið== Verkefni ykkar er að raða saman fróðleiksmolum og myndum um svarthol þannig að til verði lítil frásögn um þau. Frásögnin á að vera í fjórum köflum: # Hvað eru svarthol # Hvernig verða þau til # Hvað gerist nálægt þeim # Hvernig má finna þau Í verkefninu verða að vera: # Að minnsta kosti 10 staðreyndir um svarthol # Að minnsta kosti 2 kenningar um hvernig þau myndast # Að minnsta kosti 2 aðrir hlutir í geimnum sem tengjast svartholi # Að minnsta kosti 8 skýringarmyndir # Og svör við eftirfarandi spurningum: #* Hver er massi svarthols? #* Hvað eru sjónhvörf? #* Hvaða áhrif hefur svarthol á rúmið (geiminn) í kring? #* Hvað getur slitið hluti, til dæmis geimskip, í sundur í grennd við svarthol? Skiptið með ykkur verkum, þannig að * ein(n) verði myndasafnarinn sem safnar myndum og velur þær bestu * ein(n) verði fræðimaðurinn sem útskýrir hvað helstu fyrirbærin eru * ein(n) verði skýrsluhöfundur sem setur saman kynningu um svarthol * ein(n) verði kynnir sem heldur fyrirlestur fyrir hin í bekknum [[Mynd:Svarthol_efnisstrokur.png|thumb|300px]] ==Bjargir (efni sem er hægt að nota)== Á íslensku, ætlað öllum: * [http://www.visindavefur.hi.is/svar.asp?id=445 Hvað er svarthol?] * [http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=428 Hvernig myndast svarthol í geimnum?] * [http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=464 Verða ruslatunnur í framtíðinni lítil svarthol?] * [http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=157 Hvað er átt við með sveigðu tímarúmi og hvernig tengist það aðdráttarafli?] * [http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=551 Hvað eru ormagöng?] * [http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=553 Hvað eru hvíthol?] * [http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=838 Er hægt að koma efnisögnum á meiri hraða en ljóshraða? Ef ekki, verður þá hægt að rannsaka svokölluð svarthol?] * [http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=3403 Hvernig er þróun sólstjarna háttað?] * [http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=4940 Af hverju sogar svartholið til sín?] * [http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=606 Hvað gerist er efni fellur inn í sérstæðuna?] * [http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=4722 Hverfur allt sem fer inn í svarthol eða kemur eitthvað út úr þeim aftur?] * [http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=5941 Hvað eru til mörg svarthol og hvernig myndast þau?] * http://www.hi.is/~has7/svarthol.htm Á íslensku frá íslenskum krökkum: * [http://wayback.vefsafn.is/wayback/20050622163045/www.olduselsskoli.is/natturufraedi/Serfraedivinna/2004-2005/svarthologskammtafraedi.htm Úr Ölduselsskóla] * [http://wayback.vefsafn.is/wayback/20041020144402/www.gardaskoli.is/stjornur/lifst.htm Úr Garðaskóla] * [http://hjallaskoli.kopavogur.is/nemendur/verknemenda/heimasidur/5vh/visindi20aldar/physics.htm Úr Hjallaskóla] Hreyfimyndir á ensku, ætlaðar krökkum: * http://hubblesite.org/explore_astronomy/black_holes/ * http://www.thinktechnologies.com/portfolio/demos/Blackhole.html * http://casa.colorado.edu/~ajsh/schw.shtml Örstuttar hreyfimyndir: * [http://antwrp.gsfc.nasa.gov/htmltest/gifcity/rsgrow.mpg Að nálgast svarthol] * [http://antwrp.gsfc.nasa.gov/htmltest/gifcity/circbh.mpg Á braut um svarthol í hæfilegri fjarlægð] * [http://antwrp.gsfc.nasa.gov/htmltest/gifcity/gotops.mpg Að koma að sjónhvörfunum (þangað sem ljósið sleppur ekki burt)] * [http://antwrp.gsfc.nasa.gov/htmltest/gifcity/lookup.mpg Að horfa upp yfir sjónhvörfin] * [http://antwrp.gsfc.nasa.gov/htmltest/gifcity/pscirc.mpg Á ferðalagi um sjónhvörfin] Aðrar myndir (með texta á ensku): * [http://antwrp.gsfc.nasa.gov/apod/ap060528.html Teikning af aðsópskringlu og efnisstrók svarthols] * [http://antwrp.gsfc.nasa.gov/apod/ap060701.html Ofsalegt segulsvið þeytir efni frá aðsópskringlunni] * [http://antwrp.gsfc.nasa.gov/apod/ap051023.html Í miðju vetrarbrautarinnar okkar: Er svarthol í felum þar?] * [http://antwrp.gsfc.nasa.gov/apod/ap050312.html Teikning af aðsópskringlu með hvítri dvergstjörnu, nifteindastjörnu eða jafnvel svartholi í miðjunni] * [http://antwrp.gsfc.nasa.gov/apod/ap040908.html Teikning af aðsópskringlu séð frá hlið] * [http://antwrp.gsfc.nasa.gov/apod/ap021008.html Efnisgusur sáust þjóta burt á ofsahraða] * [http://antwrp.gsfc.nasa.gov/apod/ap020226.html Rafgas-strókar þjóta á ofsahraða frá svartholinu í miðjunni] Lesmál á ensku, ætlað krökkum: * http://www.kidsastronomy.com/black_hole.htm * http://amazing-space.stsci.edu/resources/explorations/blackholes/lesson/ * http://imagine.gsfc.nasa.gov/docs/science/know_l1/black_holes.html * http://imagine.gsfc.nasa.gov/docs/science/know_l2/black_holes.html Lesmál á erfiðari ensku, ætlað öllum: * http://science.howstuffworks.com/black-hole.htm * http://science.howstuffworks.com/black-hole1.htm * http://science.howstuffworks.com/black-hole2.htm * http://science.howstuffworks.com/black-hole3.htm <gallery> Image:Black Hole Milkyway.jpg|Svona gæti svarthol í vetrarbrautinni okkar sést. Image:Microquasar GRO J1655-40.jpg|Svarthol togar efni frá gulu stjörnunni yfir á aðsópsskífu sína. Efnisstrókar æða út. Image:Black Hole in a Star Cluster (Artist's Impression).jpg|Svarthol í geimnum, langt frá stjörnum. Image:M104 ngc4594 sombrero galaxy hi-res.jpg|Sombrero vetrarbrautin er nálægt okkar vetrarbraut. Afar orkuríkir röntgen-geislar koma frá miðju hennar, þar eru stjörnurnar einnig á fleygiferð. Talið er að þar sé svarthol sem er milljón milljón sinnum massameira en sólin okkar. </gallery> ==Úrvinnsla== Kennarinn segir ykkur nánar hvernig þið eigið að vinna þetta verkefni. Það er mjög líklegt að hann vilji að þið kynnið niðurstöður ykkar fyrir hinum í bekknum, ef til vill með því að # Flytja fyrirlestur með tölvu og skjávarpa eða # Gera plakatt með myndum og texta eða # Skrifa ritgerð sem á að vera að minnsta kosti 200 orða löng og lesa hana fyrir bekkjarsystkinin Loks eigið þið að segja hvernig ykkur fannst að vinna þetta verkefni. '''Gangi ykkur vel!''' Sett saman af Birni E. Árnasyni. 93n02fpiqubcb9a7ol5rjrabte9bpp9